Lagt fram bréf dagsett 2. maí 2022 frá Bílaklúbbi Skagafjarðar þar sem sótt er um leyfi til að halda rallaksturskeppni í Skagafirði 22.-23. júlí 2022. Keppnin er þriðja keppnin í Íslandsmeistaramóti Akstursíþróttasambands Íslands (AKÍS) og fer fram í samræmi við reglur AKÍS og reglugerð nr. 507/2007 um akstursíþróttir og aksturskeppnir, með áorðnum breytingum. Ráðgert er að keppnin fari fram með hefðbundnu sniði og eknar verði sérleiðir um þá vegi sem verið hefur undanfarin ár. Þannig verði farnar sérleiðir um Mælifellsdal og Vesturdal, auk þess sem ekið verði um Nafir (innanbæjar á Sauðárkróki). Byggðarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti svo fremi að öll önnur tilskilin leyfi fáist frá hlutaðeigandi aðilum og öllum reglum verði framfylgt.
Ráðgert er að keppnin fari fram með hefðbundnu sniði og eknar verði sérleiðir um þá vegi sem verið hefur undanfarin ár. Þannig verði farnar sérleiðir um Mælifellsdal og Vesturdal, auk þess sem ekið verði um Nafir (innanbæjar á Sauðárkróki).
Byggðarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti svo fremi að öll önnur tilskilin leyfi fáist frá hlutaðeigandi aðilum og öllum reglum verði framfylgt.