Félagsheimilið Héðinsminni - Umsókn um rekstur
Málsnúmer 2207171
Vakta málsnúmerAtvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 3. fundur - 13.09.2022
Teknar fyrir umsóknir um rekstur félagsheimilisins Héðinsminnis. Auglýst var eftir rekstraraðilum fyrir félagsheimilið þann 20. júlí sl. og rann umsóknarfrestur út 15. ágúst. Ein umsókn barst í rekstur félagsheimilsins frá Auði Herdísi Sigurðardóttur fyrir hönd ahsig ehf. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd ákveður að ganga til samninga við Auði Herdísi Sigurðardóttur (Ahsig ehf) um rekstur félagsheimilisins Héðinsminnis.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 7. fundur - 20.12.2022
Tekin fyrir samningur milli Skagafjarðar og ahsig ehf um rekstur á félagsheimilinu Héðinsminni. Málið áður á dagskrá á 3. fundi atvinnu-, menningar og kynningarnefndar þann 13. september sl.
Gildir samningurinn til 5 ára.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir framlagðan samning.
Gildir samningurinn til 5 ára.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir framlagðan samning.