Fara í efni

Kaffi Krókur Aðalgata 16 (213-1131) Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2209275

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 6. fundur - 26.09.2022

Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra í máli 2022039575, dagsettur 22. september 2022. Með vísan til 10. gr. laga nr. 85/2007, og 26. gr. reglug. nr. 1277/2016 er óskað umsagnar varðandi umsókn Kristínar Elfu Magnúsdóttur, f.h. Videosport ehf., um leyfi til að reka veitingastað í flokki III að Aðalgötu 16 á Sauðárkróki. Fasteignanúmer F2131131. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.

Byggðarráð Skagafjarðar - 15. fundur - 28.09.2022

Lögð fram umsagnarbeiðni frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, málsnúmer 2022-039575, dagsett 22. september 2022. Videosport ehf., kt. 470201-2150, sækir um leyfi til reksturs, Veitingaleyfi-B Skemmtistaður, vegna Kaffi Króks, Aðalgötu 16 (F213-1131), 550 Sauðárkróki.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.