Fara í efni

Fræðslunefnd - 6

Málsnúmer 2210007F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 6. fundur - 16.11.2022

Fundargerð 6. fundar fræðslunefndar frá 18. október 2022 lögð fram til afgreiðslu á 6. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • .1 2209337 Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2023
    Fræðslunefnd - 6 Lagður fram fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2023 ásamt forsendum rammans til fyrri umræðu í fræðslunefnd. Farið var yfir fyrstu tillögu að skiptingu fjármuna á milli stofnana fræðslumála. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin mun taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnu starfsmanna. Fræðslunefnd felur sviðsstjóra og starfsmönnum að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu. Bókun fundar Afgreiðsla 6. fundar fræðslunefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • .2 2202110 Verklagsreglur vegna afsláttar
    Fræðslunefnd - 6 Drög að verklagsreglum vegna afsláttar á dvalargjöldum í leikskólum, frístund og daggæslu í heimahúsum í Skagafirði lögð fram. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi.Fræðslunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar. Bókun fundar Afgreiðsla 6. fundar fræðslunefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • .3 2208293 Innritunarreglur fyrir leikskóla í Skagafirði
    Fræðslunefnd - 6 Drög að reglum um innritun barna í leikskóla í Skagafirði lagðar fram. Reglurnar hafa verið uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi en einnig eru lagðar til efnislegar breytingar sem lúta að tímasetningum innritunar. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar. Bókun fundar Afgreiðsla 6. fundar fræðslunefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • .4 2208291 Innritunarreglur fyrir frístund í Skagafirði
    Fræðslunefnd - 6 Lögð fram drög að innritunarreglum fyrir Frístund í Skagafirði. Um er að ræða nýjar reglur þar sem leitast er við að samræma þær á milli skóla eftir því sem hægt er. Ítrekað er þó að aðstæður í skólum Skagafjarðar eru misjafnar sem og þörf foreldra fyrir frístund fyrir börn sín að skóla loknum. Leitast er við að fanga þennan mun í reglunum. Rætt var um nokkur vafaatriði í drögunum. Fræðslunefnd samþykkir að skoða reglurnar betur og felur sviðsstjóra og starfsmönnum að fara yfir vafaatriði og leggja drögin fram aftur á næsta fundi nefndarinnar. Bókun fundar Afgreiðsla 6. fundar fræðslunefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • .5 2208294 Reglugerð um Tónlistarskóla Skagafjarðar
    Fræðslunefnd - 6 Reglur um Tónlistarskóla Skagafjarðar. Reglurnar eru annars vegar uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði og hins vegar eru gerðar nokkrar efnislegar breytinga m.a. er heiti breytt úr reglugerð í reglur um Tónlistarskóla Skagafjarðar. Þá eru sett inn ákvæði sem auðvelda nemendum að stunda miðnám í öðrum sveitarfélögum. Fræðslunefnd felur sviðsstjóra og starfsmönnum að skoða ákveðna þætti reglnanna frekar og leggja fyrir næsta fund. Bókun fundar Afgreiðsla 6. fundar fræðslunefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • .6 2208292 Innritunarreglur fyrir Tónlistarskóla Skagafjarðar
    Fræðslunefnd - 6 Lögð fram drög að innritunarreglum fyrir Tónlistarskóla Skagafjarðar. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar. Bókun fundar Afgreiðsla 6. fundar fræðslunefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • .7 2208296 Reglur um skólasókn í öðru skólahverfi Skagafjarðar
    Fræðslunefnd - 6 Drög að reglum um skólasókn í öðru skólahverfi í Skagafirði lögð fram. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar. Bókun fundar Afgreiðsla 6. fundar fræðslunefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • .8 2208298 Reglur um skólaakstur í dreifbýli Skagafjarðar
    Fræðslunefnd - 6 Drög að reglum um skólaakstur í dreifbýli Skagafjarðar lögð fram. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar. Bókun fundar Afgreiðsla 6. fundar fræðslunefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • .9 2208299 Verklagsreglur vegna barna starfsfólks í leikskólum Skagafjarðar
    Fræðslunefnd - 6 Drög að verklagsreglum vegna barna starfsfólks í leikskólum í Skagafirði lögð fram. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar. Bókun fundar Afgreiðsla 6. fundar fræðslunefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • .10 2208297 Reglur um skólavist fósturbarna í leik- og grunnskólum Skagafjarðar
    Fræðslunefnd - 6 Drög að reglum um skólavist fósturbarna í leik- og grunnskólum Skagafjarðar lagðar fram. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar. Bókun fundar Afgreiðsla 6. fundar fræðslunefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • .11 2208266 Reglur um nám starfsmanna í leikskólum
    Fræðslunefnd - 6 Drög að reglum um nám starfsmanna í leikskólum lögð fram. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar. Bókun fundar Afgreiðsla 6. fundar fræðslunefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • .12 2210016 Ytra mat á leikskólum 2023
    Fræðslunefnd - 6 Lagt fram erindi frá Menntamálastofnun með boði um að sækjast eftir ytra mati stofnunarinnar í leikskólum í Skagafirði. Skagafjörður mun ekki senda inn umsókn í þetta sinn en skoðar málið að ári. Bókun fundar Afgreiðsla 6. fundar fræðslunefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • .13 2209351 Öryggismyndavélar
    Fræðslunefnd - 6 Lagt fram minnisblað um öryggismyndavélar við skóla. Fræðslunefnd samþykkir að vinna að uppsetningu öryggismyndavélar við Árskóla og íþróttahús og felur sviðsstjóra að vinna málinu framgang í samráði við skólastjóra Árskóla, frístundastjóra, tækniumsjónarmann sveitarfélagsins og aðra þá aðila sem að málinu þurfa að koma. Gera verður ráð fyrir fjármunum í fjárhagsáætlun Árskóla vegna þessa. Ítrekað er að þegar um er að ræða börn gilda strangari reglur um persónuvernd en ella. Áður en til uppsetningar öryggismyndavéla kemur þarf að vera búið að setja reglur um notkun þeirra, tilgang og aðgang að efni úr vélunum. Þá er einnig mikilvægt að kynna öllum hagaðilum reglurnar vel, m.a. foreldrum, skólaráði og starfsmönnum skóla og íþróttahúss. Bókun fundar Afgreiðsla 6. fundar fræðslunefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.