Fara í efni

Landbúnaðarnefnd - 4

Málsnúmer 2210015F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 6. fundur - 16.11.2022

Fundargerð 4. fundar landbúnaðarnefndar frá 17. október 2022 lögð fram til afgreiðslu á 6. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðarnefnd - 4 Vegna sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði fyrr á árinu, þá þarf að endurskoða samþykkt um búfjárhald í þéttbýli í sveitarfélaginu.
    Landbúnaðarnefnd samþykkir að fela Sigrúnu Evu Helgadóttur og Kára Gunnarssyni að fara yfir samþykktina með tilliti til breytinga og leggja drög fyrir næsta fund nefndarinnar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 4. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 4 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 16. ágúst 2022 frá Kristjáni Knútssyni, Litlu Brekku varðandi lausagöngu búfjár frá Þrastarstöðum.
    Landbúnaðarnefnd telur að sveitarfélagið sé ekki málsaðili samkvæmt lögum og beinir því til málsaðila að leysa málið sín á milli.
    Bókun fundar Afgreiðsla 4. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 4 Lögð fram gögn frá Kára Gunnarssyni umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa sveitarfélagsins varðandi girðingu og mögulegar girðingarleiðir í norðanverðri Skógarhlíð ofan Sauðárkróks.
    Landbúnaðarnefnd samþykkir að beina ákvörðun um breytingu á girðingarstæði til umhverfis- og samgöngunefndar, þ.e.a.s. hvort stækka eigi land skógræktar innan girðingarinnar um ca. 5ha.
    Bókun fundar Afgreiðsla 4. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 4 Lögð fram drög að fjárhagsáætlun vegna landbúnaðarmála í málaflokki 13, atvinnumál. Gert er ráð fyrir mikilli aukningu á framlögum til viðhalds girðinga. Aðrir liðir breytast eftir forsendum rammaáætlunar. Gert er ráð fyrir að fjárframlög til landbúnaðarmála verði 27.105 þús.kr. á árinu 2023. Einnig var farið yfir áætluð framlög vegna minka- og refaeyðingar á árinu 2023. Málaflokkurinn tilheyrir umhverfis- og samgöngunefnd en landbúnaðarnefndin hefur haft umsjón með verkefninu. Áætlun vegna minka- og refaeyðingar hljóðar upp á 8.285 þús.kr.
    Landbúnaðarnefnd samþykkir framlagða fjárhagsáætlun 2023 og vísar henni til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.
    Bókun fundar Afgreiðsla 4. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 4 Vegna sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði fyrr á árinu, þá þarf að endurskoða Fjallskilasamþykkt fyrir Skagafjarðarsýslu nr. 717/2021.
    Landbúnaðarnefnd stefnir að fjallskiladeildir verði sameinaðar í sveitarfélaginu þar sem mögulegt er og sömuleiðis aflögðum skilaréttum fækkað. Málið verður til umfjöllunar hjá nefndinni áfram.
    Bókun fundar Afgreiðsla 4. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 4 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs framhluta Skagafjarðar fyrir árið 2021. Bókun fundar Afgreiðsla 4. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 4 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Seyluhrepps - úthluta, fyrir árið 2021. Bókun fundar Afgreiðsla 4. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 4 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Vestur-Fljóta, fyrir árið 2021. Bókun fundar Afgreiðsla 4. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.