Héraðsskjalasafn Skagfirðinga - Gjaldskrá 2023
Málsnúmer 2210239
Vakta málsnúmerAtvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 5. fundur - 24.10.2022
Tekin fyrir gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga fyrir 2023. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 7,7% hækkun frá fyrra ári. Vinnslugjald hækkar umfram 7,7% eða úr 5.500 kr pr. klst í 8.100 kr pr. klst. Er það gert til að samræmast tímagjaldi fyrir sömu þjónustu hjá Þjóðskjalasafni Íslands. Nefndin vísar gjaldskránni til byggðaráðs til samþykktar.
Byggðarráð Skagafjarðar - 21. fundur - 09.11.2022
Gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga fyrir árið 2023 vísað frá 5. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. október 2022.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn Skagafjarðar - 6. fundur - 16.11.2022
Gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga fyrir árið 2023 vísað frá 5. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. október 2022. Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Framlögð gjaldskrá borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.
Framlögð gjaldskrá borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.