Fara í efni

Listasafn Skagfirðinga - Gjaldskrá 2023

Málsnúmer 2210244

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 5. fundur - 24.10.2022

Tekin fyrir gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga fyrir 2023. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 7,7% hækkun frá fyrra ári og vísar nefndin henni til byggðaráðs.

Byggðarráð Skagafjarðar - 21. fundur - 09.11.2022

Gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga fyrir árið 2023 vísað frá 5. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. október 2022.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 6. fundur - 16.11.2022

Gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga fyrir árið 2023 vísað frá 5. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. október 2022. Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Framlögð gjaldskrá borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.