Fara í efni

Hátún 2 - Umsagarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2212063

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 27. fundur - 14.12.2022

Lögð fram umsagnarbeiðni frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra úr máli 2022-060441. Gunnlaugur Hrafn Jónsson, Hátúni 1, 561 Varmahlíð sækir um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-G íbúðir, gististaður án veitinga, í fasteigninni Hátún 2, F214-0475. Hámarks gestafjöldi er 8 gestir.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 10. fundur - 28.12.2022

Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra í máli 2022-060441, dagsettur 6. desember 2022. Með vísan til 10. gr. laga nr. 85/2007, og 26. gr. reglugerðar. nr. 1277/2016 er óskað umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Helgu Sjafnar Helgadóttur um leyfi til að reka gististað í Flokkur II, gististaður í íbúðarhúsi án veitinga í fasteigninni Hátún 2, F214-0475. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.