Fara í efni

Hof lóð 3 (223031) - Umsókn um nafnleyfi

Málsnúmer 2302001

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 18. fundur - 09.02.2023

Jón Eiríksson og Jóhanna Valgeirsdóttir eigendur lóðarinnar Hof lóð 3, landnúmer 223031, sækja um breytt heiti eignarinnar.
Hof var skipt út úr landi sem á þeim tíma var nefndur Brekkupartur en þar sem líka var til Brekkupartur fyrir ofan þjóðveg var hann kallaður Brekkupartur neðri.
Brekkupörtunum var skipt út úr landi Brekku sem átti þarna land niður að Húseyjarhvísl.
Með skírskotun í nafnið Brekka er sótt um að lóðin fái heitið Sólbrekka.
Engin önnur Sólbrekka er í Skagafirði.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrirlagt.