Byggðarráð Skagafjarðar - 36
Málsnúmer 2302016F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 11. fundur - 08.03.2023
Fundargerð 36. fundar byggðarráðs frá 21. febrúar 2023 lögð fram til afgreiðslu á 11. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 36 Málið áður á dagskrá 35. fundar byggðarráðs þann 15. febrúar 2023. Kjördeildir í Skagafirði hafa á liðnum árum verið átta talsins. Með bættum samgöngum hefur þróunin á landsvísu verið sú að kjördeildum hefur fækkað í sveitarfélögum landsins. Lagðar fram upplýsingar um fjölda kjósenda í hverri kjördeild fyrir sig.
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að kjördeildir í Skagafirði verði framvegis þrjár, á Sauðárkróki, Hofsósi og í Varmahlíð. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Kjördeildir í Skagafirði" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 36 Lögð fram afskriftarbeiðni nr. 202302141002452, dagsett 14.02. 2023, frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra. Óskað er eftir afskrift á fyrndum þing- og sveitarsjóðsgjöldum að höfuðstólsfjárhæð 1.330.139 kr. og 751.703 kr. að auki vegna dráttarvaxta. Samtals 2.081.842 kr.
Byggðarráð samþykkir framlagða afskriftarbeiðni. Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar byggðarráðs staðfest á 11. fundi sveitarstjórnar 8. mars 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 36 Sjá trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar byggðarráðs staðfest á 11. fundi sveitarstjórnar 8. mars 2023 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 36 Lögð fram umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts, dagsett 15. febrúar 2023, frá Sauðárkrókskirkju vegna Safnaðarheimilisins, Aðalgötu 1, F2131092. Sótt er um skv. reglum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagsamtaka skv. 2. mgr. 5.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Byggðarráð samþykkir að veita styrk skv. 3. grein reglna sveitarfélagsins þar um. Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar byggðarráðs staðfest á 11. fundi sveitarstjórnar 8. mars 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 36 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 13. febrúar 2023 þar sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 34/2023, "Breytingar á raforkulögum og lögum um Orkustofnun (raforkuöryggi)". Umsagnarfrestur er til og með 27.02.2023.
Byggðarráð Skagafjarðar leggur áherslu á að við endurskoðun á raforkulögum og lögum um Orkustofnun verði tryggt að allir landsmenn og landshlutar hafi sambærilegt aðgengi að nauðsynlegri raforku til atvinnuuppbyggingar og/eða til eflingar á byggð. Framboð og eftirspurn á raforku getur ekki eingöngu ráðist af markaðslögmálum eins og gert hefur verið ráð fyrir. Meginástæða þess er mikill mismunur á getu flutningskerfa innan landshluta og á milli þeirra í og mismunandi vegalengdir frá uppruna orkunnar til hugsanlegra notanda. Núverandi ferlar sem snúa að endurnýjun á meginflutningskerfinu og endurbótum á því eru einnig allt of þungir og hægfara sem gerir það að verkum að fjárfestar eða hugsanlegir notendur raforkunnar staðsetja sig í dag þar sem inniviðirnir eru í lagi og nægt framboð er af raforku. Hin svæðin þar sem flutningsgeta er ekki til staðar verða því útundan. Stjórnvöld verða því að tryggja jafnt aðgengi landsmanna að raforku á sama flutningsverði innan svæða og milli svæða.
Álfhildur Leifsdóttir (Vg og óháð) óskar bókað að hún sitji hjá við afgreiðslu þessa dagskrárliðar. Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar byggðarráðs staðfest á 11. fundi sveitarstjórnar 8. mars 2023 með sjö atkvæðum. Fulltrúar Vg og áháðra, Álfhildur Leifsdóttir og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir óska bókað að þær sitji hjá. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 36 Erindið áður á dagskrá 16. fundar byggðarráðs þann 5. október 2022. Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 14. febrúar 2023 frá lögmanni Fljótabakka ehf. Með vísan til 1. mgr. 10. gr. jarðalaga nr. 81/2004 tilkynnist hér með um aðilaskipti að fasteigninni Brautarholt Mýri (Víkurlundur), 65,4 fm. sumarhús með fasteignanúmerið F2143956. Kaupandi er Fljótabakki ehf., en seljandi var Elsa Baldursdóttir. Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar byggðarráðs staðfest á 11. fundi sveitarstjórnar 8. mars 2023 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 36 Lagt fram til kynningar bréf dagsett 15. febrúar 2023 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til allra sveitarfélaga, varðandi viðbúnað vegna vinnustöðvunar Eflingar stéttarfélags. Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar byggðarráðs staðfest á 11. fundi sveitarstjórnar 8. mars 2023 með níu atkvæðum.