Lagður fram tölvupóstur dagsettur 27. febrúar 2023 frá Guðríði Magnúsdóttur, Viðvík, varðandi dómsúrskurð í máli E-99/1997 við Héraðsdóm Norðurlands vestra. Stefán Ólafsson hrl. hjá Pacta lögmönnum kom á fundinn til viðræðu um málið. Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra og Stefáni Ólafssyni hrl. að ræða við Guðríði Magnúsdóttur um þau gögn sem hún hefur sent sveitarfélaginu vegna málsins.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra og Stefáni Ólafssyni hrl. að ræða við Guðríði Magnúsdóttur um þau gögn sem hún hefur sent sveitarfélaginu vegna málsins.