Víðilundur 17 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis
Málsnúmer 2304030
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 14. fundur - 18.04.2023
Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra í máli 2023-022011, dagsettur 3. apríl 2023. Með vísan til 10. gr. laga nr. 85/2007, og 26. gr. reglugerðar. nr. 1277/2016 er óskað umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Dags Þórs Baldvinssonar f.h. Víðiholts 560 ehf., kt. 510422-2870, um leyfi til að reka gististað í flokki II í frístundahúsi sem stendur á lóðinni númer 17 við Víðilund í Varmahlíð. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að rekstrarleyfið verði veitt og taki til átta gesta að hámarki í einu.