Fara í efni

Umsókn um leyfi fyrir rallýkeppni 29. júlí 2023

Málsnúmer 2306040

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 52. fundur - 14.06.2023

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 5. júní 2023 frá Bílaklúbbi Skagafjarðar þar sem sótt er um leyfi til að halda rallaksturskeppni í Skagafirði 29. júlí 2023. Keppnin er þriðja keppnin í Íslandsmeistaramóti Akstursíþróttasambands Íslands (AKÍS) og fer fram í samræmi við reglur AKÍS og reglugerð nr. 507/2007 um akstursíþróttir og aksturskeppnir, með áorðnum breytingum. Ráðgert er að keppnin fari fram með hefðbundnu sniði og eknar verði sérleiðir um þá vegi sem verið hefur undanfarin ár. Þannig verði farnar sérleiðir um Mælifellsdal og Vesturdal.
Byggðarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti svo fremi að öll önnur tilskilin leyfi fáist frá hlutaðeigandi aðilum og öllum reglum verði framfylgt.