Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Stjórn Farskólans
Málsnúmer 2306080Vakta málsnúmer
2.Ungmennaþing haustið 2023
Málsnúmer 2305176Vakta málsnúmer
Lagðir fram tölvupóstar dagsettir 9. og 23. maí 2023 frá SSNV varðandi Ungmennaþing haustið 2023. Á fundi stjórnar SSNV þann 7. febrúar 2023 var samþykkt að halda ungmennaþing á þessu ári og stefnan er að það verði haldið í byrjun október. Markmiðið með ungmennaþinginu er að fá rödd unga fólksins inn í samráðsvettvang sóknaráætlunar. Hugmyndin er að bjóða 4 ungmennum á aldrinum 14-20 ára frá hverju sveitarfélagi til að taka þátt á þinginu.
Byggðarráð samþykkir að sveitarfélagið sendi fulltrúa til þingsins og vísar því til ungmennaráðs sveitarfélagsins að tilnefna fulltrúa á ungmennaþingið.
Byggðarráð samþykkir að sveitarfélagið sendi fulltrúa til þingsins og vísar því til ungmennaráðs sveitarfélagsins að tilnefna fulltrúa á ungmennaþingið.
3.Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2023
Málsnúmer 2306020Vakta málsnúmer
Lögð fram beiðni nr. 2 um gerð viðauka við fjárhagsáætlun Skagafjarðar vegna ársins 2023. Viðaukinn gerir ráð fyrir hækkun útsvarstekna um 35 mkr. og hækkun á útgjaldaliðum A-hluta um 12.746 þkr. Rekstarniðurstaða A hluta og samstæðu sveitarfélagsins batnar um 22.254 þkr. Í viðaukanum eru millifærslur á milli fjárfestingaverkefna. Nýtt fjármagn til kaupa á sorptunnum 47,5 mkr. Fjármagn vegna fasteigna hækkað um 30 mkr., gatnagerð lækkuð um 101,8 mkr. Fjárfestingaheimild eignasjóðs í heild er lækkuð um 9 mkr. Fjármagn er hækkað til vatnsveituframkvæmda um 7,3mkr., hækkun vegna hitaveituframkvæmda 66 mkr. og lækkun fráveituframkvæmda um 11,3 mkr. Lagt er til að viðaukanum verði mætt með 30.746 þkr. lántöku hitaveitu.
Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun 2023 og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun 2023 og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.
4.Frágangur austan Sundlaugar Sauðárkróks
Málsnúmer 2306068Vakta málsnúmer
Rætt um frágang á 70m2 leiksvæði austan við sundlaugina á Sauðárkróki.
Byggðarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar umhverfis- og samgöngunefndar.
Byggðarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar umhverfis- og samgöngunefndar.
5.Umsókn um leyfi fyrir rallýkeppni 29. júlí 2023
Málsnúmer 2306040Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 5. júní 2023 frá Bílaklúbbi Skagafjarðar þar sem sótt er um leyfi til að halda rallaksturskeppni í Skagafirði 29. júlí 2023. Keppnin er þriðja keppnin í Íslandsmeistaramóti Akstursíþróttasambands Íslands (AKÍS) og fer fram í samræmi við reglur AKÍS og reglugerð nr. 507/2007 um akstursíþróttir og aksturskeppnir, með áorðnum breytingum. Ráðgert er að keppnin fari fram með hefðbundnu sniði og eknar verði sérleiðir um þá vegi sem verið hefur undanfarin ár. Þannig verði farnar sérleiðir um Mælifellsdal og Vesturdal.
Byggðarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti svo fremi að öll önnur tilskilin leyfi fáist frá hlutaðeigandi aðilum og öllum reglum verði framfylgt.
Byggðarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti svo fremi að öll önnur tilskilin leyfi fáist frá hlutaðeigandi aðilum og öllum reglum verði framfylgt.
6.Samráð; Drög að aðgerðaráætlun í málefnum íslenskrar tungu 2023-2026
Málsnúmer 2306047Vakta málsnúmer
Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 6. júní 2023, þar sem menningar- og viðskiptaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 107/2023, "Drög að aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu 2023-2026". Umsagnarfrestur er til og með 10.07.2023.
7.Ársfundur Brák íbúðafélag hses.
Málsnúmer 2306046Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar fundarboð þar sem stjórn Brákar íbúðafélags hses. boðar til ársfundar sem haldinn verður þriðjudaginn 20. júní 2023. Í samræmi við 11. gr. samþykkta Brákar íbúðafélags hses. eru stofnaðilar og fulltrúaráð sérstaklega boðaðir til fundarins en skal hann opinn öllum. Stofnaðilar hafa einir atkvæðisrétt á fundinum en stjórnarmenn, stofnaðilar og fulltrúar í fulltrúaráði eru einir bærir til að leggja til breytingar á samþykktum.
8.Ráðstefna á vefnum 19. júní um innleiðingu heimsmarkmiðanna í norrænum sveitarfélögum
Málsnúmer 2306052Vakta málsnúmer
Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 7. júní 2023 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi ráðstefnu á vefnum 19. júní um innleiðingu heimsmarkmiðanna í norrænum sveitarfélögum. Norræna byggðastofnunin, Nordregio heldur ráðstefnuna og á veffundi 19. júní nk. frá kl. 11-13 að íslenskum tíma (13-15 CET) er sérstaklega áhugaverður dagskrárliður fyrir íslensk sveitarfélög þar sem hann tekur mið af aðstæðum í fámennum sveitarfélögum.
Hlekkur á viðburðinn, https://nordregio.org/events/from-vision-to-action-agenda-2030-in-rural-municipalities/
Hlekkur á viðburðinn, https://nordregio.org/events/from-vision-to-action-agenda-2030-in-rural-municipalities/
9.Athugasemdir við álit og leiðbeiningar SÍS til sveitarfélaga vegna ágangsfjár
Málsnúmer 2306029Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar bréf dagsett 4. mars 2023 frá forsvarsmönnum umræðuhóps um lausagöngu sauðfjár til stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, varðandi athugasemdir við minnisblað sambandsins um réttarstöðu sveitarfélaga vegna ágangs búfjár.
Fundi slitið - kl. 15:00.
Byggðarráð samþykkir að tilnefna Kristófer Már Maronsson sem fulltrúa í stjórn Farskólans - miðstöðvar símenntunar og Sigurlaugu Vordísi Eysteinsdóttur til vara.