Fara í efni

Skjaldbreið - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2306204

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 19. fundur - 28.06.2023

Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra í máli 2023-035206, dagsettur 20. júní 2023. Með vísan til 10. gr. laga nr. 85/2007, og 26. gr. reglugerðar. nr. 1277/2016 er óskað umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Þóru Bjarkar Þórhallsdóttur f.h. Sindrandi Investment ehf., um leyfi til að reka gististað í flokki II - C Minna gistiheimili í einbýlihúsinu Skjaldbreið, F2143790 á Hofsósi. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.

Byggðarráð Skagafjarðar - 54. fundur - 28.06.2023

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 20. júní 2023 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Þóru Bjarkar Þórhallsdóttir, kt. 130878-4589, fyrir hönd Sindrandi Investment ehf., kt. 671119-0960, um leyfi til að reka gististað í flokki II að Skjaldbreið, 565 Hofsósi.
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að rekstrarleyfið verði veitt og taki til tíu gesta að hámarki í einu.