Fara í efni

Hólagerði L146233 - Umsókn um stofnun landspildu

Málsnúmer 2306274

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 29. fundur - 27.07.2023

Anna Lilja Guðmundsdóttir og Finnur Sigurðsson þinglýstir eigendur jarðarinnar Hólagerðis , landnúmer 146233, óska eftir heimild til að skipta 7,74 ha spildu úr landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S-101 í verki nr. 7257-0000, útg. 10. júlí 2023. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Hallgrími Inga Jónssyni. Óskað er eftir því að lóðin verði skráð sumarhúsalóð og fái heitið Hólagerði 1. Þetta landheiti er ekki skráð á annað landnúmer í sveitarfélaginu.

Landskipti þessi samræmast aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og styðja við markmið aðalskipulags um búsetu í dreifbýli. Landskipti þessi hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki. Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu. Engin fasteign er á umræddri spildu.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrirlagt.