Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 20. júlí síðastliðinn þar sem óskað er umsagnar skipulagsfulltrúa með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 vegna umsóknar frá Guðmundi Þór Guðmundssyni f.h. Guðmundar Magnússonar og Stefaníu F. Finnbogadóttur um leyfi fyrir viðbyggingu, garðskála á lóðinni númer 79 við Raftahlíð á Sauðárkróki.
Meðfylgjandi er uppdráttur gerður af Guðmundi Þór Guðmundssyni byggingarfræðingi. Uppdráttur er í verki 0223, númer 01, dagsettur 14.05.2023.
Einnig meðfylgjandi yfirlýsingar lóðarhafa Raftarahlíðar 69, 71, 73, 75, 77 og 81 sem eru sambyggð Raftahlíð 79 þar sem fram kemur að ekki séu gerðar athugasemdir við ætlaða framkvæmd.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið og gerir ekki athugasemdir við að byggingarfulltrúi veiti umbeðið byggingarleyfi.