Fara í efni

Staðarhof 3 - Fyrirspurn um breytta notkun.

Málsnúmer 2307121

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 29. fundur - 27.07.2023

Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 20. júlí síðastliðinn þar sem óskað er umsagnar skipulagsfulltrúa með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 vegna umsóknar frá Sigurjóni R. Rafnssyni um leyfi til að breyta notkun frístundahúss í íbúðarhús sem stendur á lóðinni Staðarhofi 3 L232026.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið og gerir ekki athugasemdir við að byggingarfulltrúi breyti skráningu húss og lóðar.