Fara í efni

Ketubjörg - Áningarstaður - Framkvæmdarleyfisumsókn

Málsnúmer 2308098

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 31. fundur - 24.08.2023

Steinn Leó Sveinsson sviðstjóri veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar sækir fyrir hönd framkvæmdasviðs Skagafjarðar um framkvæmdaleyfi skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. reglugerðar nr. 772/2012, vegna fyrirhugaðrar uppbyggingu áningastaða við ferðamannastaðinn Ketubjörg í landi Ketu á Skaga í Skagafirði. Svæðið er á skilgreindum landnotkunarreit fyrir afþreyingar- og ferðamannasvæði AF-2 í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035. Þar er gert ráð fyrir áningarstað í náttúru og gönguleiðum.
Verkið felst í því að byggja upp bílastæði sunnan og norðan Ketubjarga þar sem einnig er gert ráð fyrir bílastæðum fyrir hreyfihamlaða.

Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði umbeðið framkvæmdaleyfi.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 17. fundur - 13.09.2023

Vísað frá 31. fundi skipulagsnefndar frá 24. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Steinn Leó Sveinsson sviðstjóri veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar sækir fyrir hönd framkvæmdasviðs Skagafjarðar um framkvæmdaleyfi skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. reglugerðar nr. 772/2012, vegna fyrirhugaðrar uppbyggingu áningastaða við ferðamannastaðinn Ketubjörg í landi Ketu á Skaga í Skagafirði. Svæðið er á skilgreindum landnotkunarreit fyrir afþreyingar- og ferðamannasvæði AF-2 í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035. Þar er gert ráð fyrir áningarstað í náttúru og gönguleiðum.
Verkið felst í því að byggja upp bílastæði sunnan og norðan Ketubjarga þar sem einnig er gert ráð fyrir bílastæðum fyrir hreyfihamlaða. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði umbeðið framkvæmdaleyfi."

Sveitarstjórn Skagafjaðar samþykkir með níu atkvæðum, að veita umbeðið framkvæmdaleyfi.