Byggðarráð Skagafjarðar - 61
Málsnúmer 2309011F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 18. fundur - 25.10.2023
Fundargerð 61. fundar byggðarráðs frá 13. september 2023 lögð fram til afgreiðslu á 18. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 61 Lagður fram fjárhagsrammi fyrir rekstraráætlun ársins 2024 ásamt minnisblaði frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 28. ágúst 2023, varðandi forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2024-2027.
Byggðarráð samþykkir fjárhagsramma ársins 2024 og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Fjárhagsáætlun 2024-2027, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 61 Páll Magnússon hefur látið af störfum sem umsjónarmaður með Málmey. Sveitarstjóri hefur fundað með forstjóra Vegagerðarinnar um málið og aðilar eru sammála um að rétt sé að sveitarfélagið auglýsi eftir nýjum umsjónarmanni með eyjunni.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að auglýsa eftir umsjónarmanni með eyjunni. Bókun fundar Afgreiðsla 61. fundar byggðarráðs staðfest á 18. fundi sveitarstjórnar 25. október 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 61 Lagt fram bréf dagsett 5. september 2023 frá innviðaráðuneytinu til allra sveitarfélaga þar sem sveitarfélög eru hvött til mótun málstefnu og vísa til 130. greinar sveitarstjórnarlaga um málstefnu sveitarfélaga.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að hafa samband við Samband íslenskra sveitarfélaga um sameininlega málstefnu fyrir sveitarfélögin. Bókun fundar Afgreiðsla 61. fundar byggðarráðs staðfest á 18. fundi sveitarstjórnar 25. október 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 61 Lagt fram til kynningar fundarboð dagsett 8. september til þingfulltrúa 7. haustþings SSNV og stjórnenda sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem verður haldið á Hótel Laugarbakka þann 12. október 2023. Bókun fundar Afgreiðsla 61. fundar byggðarráðs staðfest á 18. fundi sveitarstjórnar 25. október 2023 með níu atkvæðum.