Fara í efni

Útsvarshlutfall í Skagafirði 2024

Málsnúmer 2310020

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 65. fundur - 10.10.2023

Lögð fram tillaga um að útsvarshlutfall í Skagafirði árið 2024 verði 14,74%, þ.e. óbreytt frá árinu 2023.
Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 18. fundur - 25.10.2023

Vísað frá 65. fundi byggðarráðs frá 10. október sl. þannig bókað:
"Lögð fram tillaga um að útsvarshlutfall í Skagafirði árið 2024 verði 14,74%, þ.e. óbreytt frá árinu 2023.Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

Byggðarráð Skagafjarðar - 77. fundur - 20.12.2023

Fyrir liggur samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar.
Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15.12.2023, samþykkir byggðarráð Skagafjarðar að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,97% og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 21. fundur - 20.12.2023

Fyrir liggur samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar.
Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12. 2023, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15.12. 2023, samþykkir sveitarstjórn Skagafjarðar að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,97%.
Breyting á útsvari mun ekki leiða til þess að heildarálögur á skattgreiðendur hækki þar sem tekjuskattsálagning ríkisins lækkar um samsvarandi á móti.
Tillagan samþykkt samhljóða með níu atkvæðum