Skipulagsnefnd - 36
Málsnúmer 2310024F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 19. fundur - 15.11.2023
Fundargerð 36. fundar skipulagsnefndar frá 26. október 2023 lögð fram til afgreiðslu á 19. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Skipulagsnefnd - 36 Lögð fram drög að deiliskipulagstillögu fyrir Lækjarbakka og Lækjarbrekku á Steinsstöðum unnin á Stoð efh. verkfræðistofu dags. 13.10.2023. Stærð skipulagssvæðis er 3,4 hekarar og er svæðið innan íbúðarbyggðar ÍB-801 í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035. Í skipulaginu eru skilgreind lóðarmörk og byggingarskilmálar fyrir núverandi lóðir auk 12 nýrra lóða. Meðfylgjandi er umsögn Vegagerðarinnar, tölvupóstur dags. 17. október 2023 frá Magnúsi Björnssyni, þar sem vegtengingar skv. tillögu eru samþykktar.
Skipulagsnefnd leggur til við Sveitarstjórn að setja tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð við Steinsstaði í auglýsingu í samræmi við 41. gr skipulagslaga 123/2010. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Steinsstaðir - Íbúðarbyggð - Deiliskipulag, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 36 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við auglýsta tillögu á vinnslustigi fyrir Freyjugarðinn á Sauðárkróki, mál nr. 208/2023 (https://skipulagsgatt.is/issues/208) í Skipulagsgáttinni, nýrri samráðsgátt Skipulagsstofnunar um skipulagsmál.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins. Til upplýsingar þá verður íbúafundur vegna málsins auglýstur síðar.
Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar skipulagnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember með átta atkvæðum. Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir óskar bókað að hún vék af fundi undir afgreiðslu málsins. -
Skipulagsnefnd - 36 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir Kirkjureitinn á Sauðárkróki, mál nr. 578/2023 (https://skipulagsgatt.is/issues/578) í Skipulagsgáttinni, nýrri samráðsgátt Skipulagsstofnunar um skipulagsmál.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar skipulagnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 36 Heba Guðmundsdóttir verkefnastjóri hjá Skagafirði, ábyrgðarmaður verkefnisins Staðarbjargavík - Framkvæmdir við útsýnispalla, stiga og göngustíga sendir inn fyrirspurn varðandi hvort farið verði fram á deiliskipulag vegna framkvæmdaleyfis fyrir verkefninu.
Meðfylgjandi gögn eru frumhönnunargögn vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Staðarbjargavík unnin af Oddi Hermannssyni landslagsarkitekt hjá Landformi landlagsarkitektar. Sótt hefur verið um styrk í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða fyrir framkvæmdunum.
Samkvæmt Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035 er svæðið skilgreint á opnu svæði OP-603 og er Staðarbjargavík hverfisvernduð (HV-602), þ.e. stuðlabergsklettar í Staðarbjargavík. Markmið með hönnunartillögunni er að gera stuðlabergið sýnilegra og styrkja aðgengi. Lagt er upp með að framkvæmdin raski á engan hátt hinni hverfisvernduðu náttúrusmíð. Í tillögunni er gert ráð fyrir að nýta núverandi bílastæði við Suðurbraut.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaraðila verði heimilt að vinna deiliskipulag á eigin kostnað skv. 2. mrg 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem ekki er gerð grein fyrir fyrirhugaðri framkvæmd í gildandi Aðalskipulagi Skagafjarðar og því ekki hægt að veita framkvæmdaleyfi sem byggir á því.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Staðarbjargarvík - Hofsós - Fyrirspurn um framkvæmdaleyfi, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 36 Ingvar Páll Ingvarsson og Ingvar Gýgjar Sigurðarson lóðarhafar lóðar nr. 7 við Borgarsíðu á Sauðárkóki sækja um að skila fyrrgreindri lóð inn til Sveitarfélags Skagafjarðar. Undirritaðir fengu lóðina afhenta á 10. fundi skipulagsnefndar 20. október 2022.
Skipulagsnefnd samþykkir skil á lóðinni Borgarsíðu 7 og mun lóðin vera auglýst til úthlutunar í samræmi við gildandi úthlutunarreglur sveitarfélagsins.
Sigurður H. Ingvarsson vék af fundi við afgreiðslu erindisins. Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar skipulagnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 36 Lagt fram til kynningar umsagnarbeiðni Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um frumvarp til laga um tímabundnar undanþágur frá skipulags- og byggingarlöggjöf og skipulagi, 314. mál. Umsagnarfrestur er til 1. nóvember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/pdf/154/s/0318.pdf. Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar skipulagnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 36 Lagt fram til kynningar umsagnarbeiðni Innviðaráðuneytisins í máli nr. 201/2023, "Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lögheimili og aðsetur, lögum um mannvirki og lögum um brunavarnir", framlengdur umsagnarfrestur rennur út 29.10.2023 (https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3573). Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar skipulagnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember með níu atkvæðum.
-
Skipulagsnefnd - 36 Hlín Benediktsdóttir og Magni Pálsson fulltrúar frá Landsneti komu á fund skipulagsnefndar til að fara yfir stöðu verkefnisins.
Sveitarstjóri Skagafjarðar Sigfús Ingi Sigfússon og Einar E. Einarsson, Sólborg S. Borgarsdóttir, Guðlaugur Skúlason, Jóhanna Ey Harðardóttir, Sigurlaug V. Eysteinsdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir og Sveinn Úlfarsson fulltrúar sveitarstjórnar Skagafjarðar sátu einnig undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar skipulagnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 36 Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn Skagafjarðar við eftirfarandi mál í skipulagsgáttinni:
Breytingar á Blöndulínu 3, nr. 0672/2023: Tilkynning um framkvæmd (Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu).
Kynningartími er til 2.11.2023.
Skipulagsfulltrúa falið að óska eftir fresti við Skipulagsstofnun til að skila inn umsögn vegna breytingar á fyrirhuguðum breytingum á Blöndulínu 3 þar sem skipulagsnefnd hafi fyrst fengið formlega kynningu á þeim frá Landsneti í dag 26.10.2023.
Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar skipulagnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 36 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 25 þann 04.010.2023. Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar skipulagnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember með níu atkvæðum.