Byggðarráð Skagafjarðar - 70
Málsnúmer 2311012F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 20. fundur - 13.12.2023
Fundargerð 70. fundar byggðarráðs frá 15. nóvember 2023 lögð fram til afgreiðslu á 20. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 70 Lagt fram minnisblað, dagsett 7. nóvember 2023, þar sem farið er yfir rafrænar undirritanir sem til stendur að taka upp í skjalakerfi sveitarfélagsins OneSystems. Kaupa þarf viðbótareiningu OneSign sem mun nýtast starfsmönnum og nefndum til undirritunar á skjölum, teikningum og fundargerðum.
Sigfús Ólafur Guðmundsson kom til fundarins undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir yfirfærslu í rafrænt undirritunarkerfi. Bókun fundar Afgreiðsla 70. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 70 Málið áður á dagskrá 69. fundar byggðarráðs þann 8. nóvember 2023. Magnús Jónsson veðurfræðingur óskar eftir styrk vegna kaupa og uppsetningu á sólskinsmæli sem áformað er að setja upp í Skagafirði. Rekstur tækjanna yrði í umsjá Veðurstofu Íslands.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands eru sólskinsstundamælingar einungis gerðar á fjórum stöðum á landinu í dag, í Reykjavík, á Akureyri, við Mývatn og á Höfn í Hornafirði. Þeir mælar voru kostaðir og eru reknir af Veðurstofu Íslands. Áform um frekari mælingar hafa verið reifaðar en ekki komist til framkvæmda vegna takmarkaðra fjárráða Veðurstofunnar.
Byggðarráð samþykkir að styrkja kaupin að upphæð kr. 300 þúsund gegn mótframlagi annarra aðila sem tilgreindir eru í styrkumsókn. Byggðarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2024. Bókun fundar Afgreiðsla 70. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 70 Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 9. nóvember 2023, frá forstöðumanni Náttúrustofu Norðurlands vestra með beiðni um að fá lánaðan hvítabjörn sem felldur var í Fljótunum 1986. Hugmyndin er að hafa hann til sýnis í salnum í húsakynnum Náttúrustofu Norðurlands vestra á Sauðárkróki.
Byggðarráð fagnar frumkvæðinu og samþykkir lán fyrir sitt leyti. Byggðarráð felur sveitarstjóra að gera samning þar að lútandi við Náttúrustofu. Bókun fundar Afgreiðsla 70. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 70 Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 9. nóvember 2023, frá framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra þar sem tilkynnt er að búið sé að opna fyrir umsóknir um framlög til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða. Framlögin eru veitt á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036.
Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudagsins 22. janúar 2024.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirbúa umsóknir í sjóðinn. Bókun fundar Afgreiðsla 70. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 70 Lögð fram umsókn um endurnýjun samnings, dagsett 8. nóvember 2023, um rekstur sundlaugarinnar á Sólgörðum frá 1. janúar 2024 til 31. desember 2026 frá Sótahnjúki ehf.
Byggðarráð samþykkir að boða umsækjendur til fundar. Bókun fundar Afgreiðsla 70. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 70 Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 13. nóvember 2023, frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis þar sem fulltrúar frá sveitarfélaginu Skagafirði eru boðaðir til fundar með umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Fundurinn verður haldinn 17. nóvember 2023 kl 9 þar sem fjallað verður um tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að tilkynna þátttakendur frá byggðarráði inn á fundinn. Bókun fundar Afgreiðsla 70. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 70 Lögð fram gjaldskrá íþróttamannvirkja fyrir árið 2024, sem vísað var til byggðarráðs frá 17. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. nóvember 2023.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána með áorðnum breytingum og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá íþróttamannvirkja 2024, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 70 Lögð fram gjaldskrá fráveitu- og tæmingu rotþróa fyrir árið 2024, sem vísað var til byggðarráðs frá 19. fundi umhverfis- og samgöngunefndar þann 9. nóvember 2023.
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Erindið var fullafgreitt á fundi sveitarstjórnar þann 15. nóvember 2023 -
Byggðarráð Skagafjarðar - 70 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 10. nóvember 2023 frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um Alexandersflugvöll sem varaflugvöll fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar-, og Egilsstaðaflugvelli, 127. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist berist eigi síðar en 24. nóvember nk.
Byggðarráð fagnar þingsályktunartillögunni og áréttar að sveitarfélagið Skagafjörður hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á uppbyggingu Alexandersflugvallar sem varaflugvallar vegna góðra lendingarskilyrða og landfræðilegrar legu flugvallarins. Það er óumdeilt að lendingarskilyrði á vellinum eru með því besta sem gerist á landinu. Þeir dagar þar sem völlurinn lokar vegna veðurskilyrða eru fátíðir og slíkt myndi heyra til undantekinga með bættum vallarbúnaði. Jafnframt er ljóst að uppbygging vallarins myndi hafa veruleg jákvæð áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi öllu. Þá má benda á í ljósi mögulegs eldsumbrotatímabils sem gæti varað næstu áratugi á Reykjanesskaga að það er þjóðhagslega mikilvægt og brýnt til að tryggja öryggi í millilandaflugi að bæta aðstæður á Alexandersflugvelli og byggja hann upp sem varaflugvöll. Hann gæti sem slíkur þjónað bæði farþegaflugi og flugfrakt komi upp alvarlegt rof á samgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um sveitarstjórn taki undir bókun byggðarráðs, sem hljóðar eftirfarandi:
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 10. nóvember 2023 frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um Alexandersflugvöll sem varaflugvöll fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar-, og Egilsstaðaflugvelli, 127. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist berist eigi síðar en 24. nóvember nk.
Sveitarstjórn Skagafjarðar fagnar þingsályktunartillögunni og áréttar að sveitarfélagið Skagafjörður hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á uppbyggingu Alexandersflugvallar sem varaflugvallar vegna góðra lendingarskilyrða og landfræðilegrar legu flugvallarins. Það er óumdeilt að lendingarskilyrði á vellinum eru með því besta sem gerist á landinu. Þeir dagar þar sem völlurinn lokar vegna veðurskilyrða eru fátíðir og slíkt myndi heyra til undantekinga með bættum vallarbúnaði. Jafnframt er ljóst að uppbygging vallarins myndi hafa veruleg jákvæð áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi öllu. Þá má benda á í ljósi mögulegs eldsumbrotatímabils sem gæti varað næstu áratugi á Reykjanesskaga, að það er þjóðhagslega mikilvægt og brýnt til að tryggja öryggi í millilandaflugi að bæta aðstæður á Alexandersflugvelli og byggja hann upp sem varaflugvöll. Hann gæti sem slíkur þjónað bæði farþegaflugi og flugfrakt komi upp alvarlegt rof á samgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli.
Samþykkt með níu atkvæðum.
Afgreiðsla 70. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum. - .10 2311081 Samráð; Landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólksByggðarráð Skagafjarðar - 70 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 9. nóvember 2023 þar sem félags- og vinnumálaráðuneyti kynnir til samráðs mál nr. 230/2023 „Landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks“.
Umsagnarfrestur er til og með 23. nóvember 2023. Bókun fundar Afgreiðsla 70. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum. - .11 2311094 Samráð; Áform um lagasetningu um breytingu á ýmsum lögum vegna þjóðlendna (starfslok óbyggðanefndar o.flByggðarráð Skagafjarðar - 70 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 10. nóvember 2023 þar sem forsætisráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 231/2023 „Áform um lagasetningu um breytingu á ýmsum lögum vegna þjóðlendna (starfslok óbyggðanefndar o.fl.)“.
Umsagnarfrestur er til og með 20. nóvember 2023. Bókun fundar Afgreiðsla 70. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 70 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 10. nóvember 2023 þar sem félags- og vinnumálaráðuneyti kynnir til samráðs mál nr. 232/2023 „Grænbók í málefnum innflytjenda og flóttafólks“.
Umsagnarfrestur er til og með 8. desember 2023. Bókun fundar Afgreiðsla 70. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum.