Fara í efni

Fyrirspurn um húsnæði á Hólum

Málsnúmer 2405603

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 99. fundur - 29.05.2024

Lögð fram fyrirspurn frá formanni Kvenfélags Hólahrepps, dags. 22. maí 2024, um aðgang félagsins að húsnæði núverandi starfsstöðvar Grunnskólans austan Vatna á Hólum í Hjaltadal.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita Kvenfélagi Hólahrepps áframhaldandi aðgang að húsnæði því sem starfsstöð Grunnskólans austan Vatna á Hólum hefur verið starfrækt í, þar sem ekki liggur fyrir ákvörðun um aðra starfsemi í húsinu að svo stöddu.