Eyrarvegur 20 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2501081
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 56. fundur - 23.01.2025
Þórður Karl Gunnarsson tæknifræðingur sækir f.h. Kaupfélags Skagfirðinga um leyfi fyrir viðbyggingu, frystiklefa og afgreiðslurými á lóðinni númer 20 við Eyrarveg. Fyrirhuguð bygging tengist starfsemi Kjötafurðarstöðvar KS og FISK Seafood. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 49080000, númer A-100 til og með A-107, dagsettir 08.01.2025. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.