Molastaðir L146862 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2501395
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 57. fundur - 03.02.2025
Hallgrímur Ingi Jónsson tæknifræðingur sækir f.h. Halldórs G. Hálfdánarsonar og Maríu Þ. Númadóttur um leyfi til að byggja sauðburðaraðstöðu á landi sem verið er að skipta út úr jörðinni Molastöðum, L146862. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 78510015, númer A-101, A-102 og A-103 , dagsettir 21.01.2025. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.