Menningar-, íþrótta- og æskulýðsnefnd
Ásdís Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Guðjónsdóttir, Jón Garðarsson, Helgi Thorarensen og Ómar Bragi Stefánsson.
DAGSKRÁ:
- Fulltrúar UMSS koma á fundinn.
- Árið 2000 - upplýsingar um hátíðarhöld.
- Bókasöfn í Skagafirði.
- Minjahúsið á Sauðárkróki.
- Samningur við Skíðadeild Tindastóls kynntur.
- Bréf frá Iðnaðarmannafélagi Skagafjarðar vegna styrkbeiðni.
- Önnur mál.
AFGREIÐSLUR:
- Haraldur Jóhannsson og Halldór Halldórsson frá UMSS komu á fundinn. Rætt var um landsmót UMFÍ 2004. Ákveðið að halda áfram með upplýsingaöflun um mótið.
- Samþykkt að óska eftir fundi með ráðgjafanefnd vegna 2000 hátíðarhalda í Skagafirði.
- Unnar Ingvarsson og Dóra Þorsteinsdóttir komu á fundinn. Var rætt um bókasöfnin í Skagafirði og framtíð þeirra. Ákveðið að kalla saman starfsmenn almenningsbókasafna í Skagafirði til fundar.
- Kristján Runólfsson mætti á fundinn. Hann upplýsti fundarmenn um starfsemina og hvernig sl. sumar hefði gengið. Ákveðið var að fara í vinnu við endurskoðun á samningi við Kristján.
- Lagður fyrir og kynntur samningur við Skíðadeild Tindastóls um uppbyggingu skíðasvæðis í Tindastóli. Formaður bar fram tillögu um að samningnum yrði vísað til byggðarráðs. Samþykkt með þremur atkvæðum gegn einu.
Helgi Thorarensen óskar bókuð mótmæli gegn því að samningi um uppbyggingu á skíðasvæði í Tindastóli verði vísað til byggðarráðs án þess að MÍÆ nefnd fái tækifæri að taka afstöðu til samningsins.
Jón Garðarsson óskar bókunar:
“Mæli með samningnum”. - Frestað
- Önnur mál.
a) Kynnt blað MÍÆ um vetrarstarf 1999-2000.
b) Kynnt uppsagnarbréf frá forstöðumanni félagsmiðstöðvarinnar.
Fundi slitið.