Menningar-, íþrótta- og æskulýðsnefnd
Fundur haldinn að Hótel Varmahlíð mánudaginn 13. desember kl. 1600.
Mættir: Ásdís Guðmundsdóttir, Helgi Thorarensen, Jón Garðarsson, Gísli Eymarsson, Sigurbjörg Guðjónsdóttir og Ómar Bragi Stefánsson.
DAGSKRÁ:
- Skoðunarferð í Náttúrugripasafnið í Varmahlíð.
- Fjárhagsáætlun.
- Bréf frá Vesturfarasetrinu.
- Önnur mál.
AFGREIÐSLUR:
- Fór nefndin og skoðaði safnið undir leiðsögn frá Páli Dagbjartssyni.
- Fundarmenn fóru yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2000.
- Valgeir Þorvaldsson kom á fundinn og kynnti fyrir fundarmönnum fyrirhugaða sýningu frá Utah.
- Önnur mál - engin.