Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar
SVEITARSTJÓRN SKAGAFJARÐAR
FUNDUR 87 - 17.12.2001.
Ár 2001, mánudaginn 17. desember kom Sveitarstjórn Skagafjarðar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins kl. 1700.
Mætt voru: Herdís Á. Sæmundardóttir, Einar Gíslason, Örn Þórarinsson, Elinborg Hilmarsdóttir, Ingibjörg Hafstað, Snorri Styrkársson, Árni Egilsson, og sveitarstjóri Jón Gauti Jónsson.
Forseti fund og lýsti dagskrá:
DAGSKRÁ:
1. Samningur um sölu á Rafveitu Sauðárkróks.
AFGREIÐSLUR:

Til máls tók Árni Egilsson og óskar hann bókað að sjálfstæðismenn í sveitarstjórn taki ekki þátt í afgreiðslu um sölu á Rafveitu Sauðárkróks til Rafmagnsveitna ríkisins og vísa til fyrri bókana sjálfstæðismanna um sölu á Rafveitu Sauðárkróks til Rafmagnsveitna ríkisins.
Þá tók Herdís Sæmundardóttir til máls. Vekur hún athygli á því að aðeins einn fulltrúi sjálfstæðismanna í sveitarstjórn er mættur á fundinn. Þá leggur hún fram svohljóðandi bókun:
#GLVið fulltrúar meirihlutans í sveitarstjórn Skagafjarðar viljum láta í ljós ósk okkar um það að sala Rafveitu Sauðárkróks verði sveitarfélaginu til heilla. Jafnframt viljum við nota þetta tækifæri til að þakka starfsmönnum Rafveitu Sauðárkróks fyrir ágæt störf í þágu sveitarfélagsins í gegn um tíðina og óska þeim velfarnaðar í framtíðinni#GL.
Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs. Samningur um sölu á Rafveitu Sauðárkróks til Rafmangsveitna ríkisins borinn undir atkvæði og samþykktur samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundargerð upplesin og samþykkt og fundi slitið kl. 17.1o
Elsa Jónsdóttir, ritari.