Umhverfisnefnd
Ár 2003, mánudaginn 7. júlí kl. 16:00 kom Umhverfisnefnd Skagafjarðar saman til fundar í Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki.
Mætt voru:
Ómar Unason, Viðar Einarsson, Elinborg Hilmarsdóttir og Hallgrímur Ingólfsson, sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs.
Dagskrá:
- Drög að reglugerð um urðun úrgangs.
- Drög að náttúruverndaráætlun.
- Önnur mál.
AFGREIÐSLUR:
1. Nefndinni barst frá Umhverfisráðuneytinu til umsagnar drög að reglugerð um urðun úrgangs. Markmið reglugerðar þessarar er að stuðla að því að urðun úrgangs valdi sem minnstum óæskilegum áhrifum á umhverfið. Í því felst að urðun úrgangs mengi ekki vatn, jarðveg né andrúmsloft, að dregið verði úr þeirri hættu sem urðun úrgangs getur haft á heilsu manna og dýra, að dregið verði úr urðun úrgangs og að urðun verði háttað þannig að úrgangur nái jafnvægi við umhverfi sitt á sem skemmstum tíma.
Nefndin gerir engar athugasemdir við framangreind drög.
2. Erindið sem var áður á dagskrá á fundi Umhverfisnefndar þann 2. júní sl. þar sem því var vísað til Skipulags- og byggingarnefndar til kynningar. Erindið var tekið fyrir á fundi nefndarinnar þann 6. júní sl. Umhverfisnefndin hafnar friðlýsingu Drangeyjar en tekur að öðru leyti undir bókun Skipulags- og byggingarnefndar frá ofangreindum fundi.
3. Önnur mál. Engin.
Fleira ekki gert, fundi slitið.
Viðar Einarsson ritaði fundargerð.