Sauðárkrókur – Efri garður 2025, þekja og lagnir
04.12.2024
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Sauðárkrókur – Efri garður 2025, þekja og lagnir“.
Steypa upp vatns- rafbúnaðarhús og 2 stk. undirstöður fyrir ljósamöstur.
|
Leggja ídráttarrör.
|
Leggja heita- og kaldavatnslagnir.
|
Setja upp vatnshana og tenglaskápa.
|
Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu.
|
Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 2.590 m2.
|
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 4. desember 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 17. desember 2024.
Sérstakur opnunarfundur verður ekki haldinn, en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildar tilboðsupphæð.