Framúrskarandi verkefni 2023
03.01.2024
SSNV kallar eftir tilnefningum til framúrskarandi verkefna á Norðurlandi vestra á árinu 2023.
Þetta er í fimmta sinn sem viðurkenningin verður veitt og gert er ráð fyrir að hún verði afhent í mars 2024.
Viðurkenningarnar eru veittar í tveimur flokkum:
- Verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar.
- Verkefni á sviði menningar.
Viðurkenningarnar geta fallið í hlut einstaklinga, hópa, félaga, fyrirtækja eða stofnana á Norðurlandi vestra fyrir framlag sitt í ofangreindum flokkum.
Tekið er við tilnefningum til miðnættis 24. janúar 2024 í gegnum rafrænt skráningarform. Ekki er tekið við tilnefningum með öðrum hætti.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2019 fengu: Sýndarveruleiki ehf. og Kakalaskáli.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2020 fengu: Vörusmiðja Biopol og Handbendi brúðuleikhús.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2021 fengu: Brúnastaðir í Fljótum, Maður og kona ehf. og Sögufélag Skagafjarðar.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2022 fengu: Austan Vatna og Ós Textíllistamiðstöð.
Nánari umfjöllun á heimasíðu SSNV.