Kveðja til íbúa Húnabyggðar
21.08.2022
Kæra sveitarstjórn og íbúar Húnabyggðar,
Fyrir hönd íbúa Skagafjarðar sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur vegna þess harmleiks sem átti sér stað á Blönduósi í morgun. Hugur okkar er hjá okkar kæru nágrönnum og öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna atburðanna.
Sveitarstjórn Skagafjarðar