Skólahald fellur niður á morgun, fimmtudaginn 6. febrúar
05.02.2025
Veðurstofa Íslands hefur uppfært veðurviðvaranir úr appelsínugulri í rauða fyrir Norðurland vestra frá kl. 10:00 til 16:00 á morgun. Allt skólahald í leik- og grunnskólum í Skagafirði fellur niður sem og frístund. Þá verða einnig allar sundlaugar í Skagafirði lokaðar á morgun vegna veðurs.
Aðgerðastjórn Almannavarna (AST) á Norðurlandi vestra hefur verið virkjuð og mun starfa á meðan veðrið gengur yfir.
Íbúar eru hvattir til að tryggja lausamuni og sýna aðgát á meðan veðrið gengur yfir.