Hafnarstjórn
Hafnarstjórn Skagafjarðar
Fundur 24 – 09.10.2000
Ár 2000, mánudaginn 9. október kom hafnarstjórn saman til fundar á Skrifstofu Skagafjarðar kl. 15.oo.
Mættir voru: Brynjar Pálsson, Björn Björnsson, Eiríkur Jónsson, Gunnar Valgarðsson og Pétur Valdimarsson. Auk þeirra Elsa Jónsdóttir skrifstofustjóri.
DAGSKRÁ:
- Ársfundur Hafnasambands sveitarfélaga 2000.
- Önnur mál.
AFGREIÐSLUR:
1. Lagt fram fundarboð og dagskrá vegna Ársfundar Hafnasambands sveitarfélaga 2000, en fundurinn verður haldinn á Akureyri 12. og 13. október n.k.
Hafnarstjórn samþykkir að hafnarvörður og formaður hafnarstjórnar sæki fundinn.
2. Rætt um ástand í smábátahöfninni. Hafnarstjórn óskar eftir því að Hallgrímur Ingólfsson tæknifræðingur ásamt hafnarverði athugi með úrbætur, en kvartað hefur verið undan því að bátar hafi skemmst í höfninni.
Fleira ekki gert. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 15.3o
Elsa Jónsdóttir, ritari.
Brynjar Pálsson
Björn Björnsson
Gunnar Valgarðsson
Eiríkur Jónsson
Pétur Valdimarsson