Hafnarstjórn
Hafnarstjórn Skagafjarðar
Fundur 30 – 19.06. 2001
Ár 2001, þriðjudaginn 19. júní kom hafnarstjórn saman til fundar á Skrifstofu Skagafjarðar kl. 13.3o.
Mættir voru: Guðmundur Þór Árnason, Eiríkur Jónsson, Gunnar Valgarðsson og Pétur Valdimarsson. Auk þeirra Hallgrímur Ingólfsson bæjartæknifræðingur, Gunnar Steingrímsson hafnarvörður og Snorri Björn Sigurðsson sveitarstjóri.
DAGSKRÁ:
- Ársreikningar 2000 - síðari umræða.
- Framkvæmdir ársins.
AFGREIÐSLUR:
1. Hafnarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Hafnarsjóðs fyrir árið 2000 til Byggðarráðs og síðari umræðu í sveitarstjórn.
2. Bæjartæknifræðingur gerði grein fyrir væntanlegum framkvæmdum.
Fleira ekki gert. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 13.45
Gunnar Valgarðsson Snorri Björn Sigurðsson, ritari.
Guðmundur Þór Árnason
Pétur Valdimarsson
Eiríkur Jónsson