Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar
Dagskrá
1.Styrkbeiðni vegna kórferðalags
Málsnúmer 1908207Vakta málsnúmer
2.Styrkbeiðni vegna sauma á kyrtli
Málsnúmer 1909067Vakta málsnúmer
Tekin fyrir styrktarbeiðni frá Pilsaþyt í Skagafirði vegna saums á kyrtli sem yrði til afnota fyrir Fjallkonu Skagafjarðar á 17. júní dagsett 05.09.19.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 300.000 kr og felur starfmönnum nefndarinnar að gera samstarfssamning við Pilsaþyt um verkefnið.
Tekið af lið 05712.

3.Gjaldskrá 2020 Byggðasafn Skagfirðinga - Glaumbær
Málsnúmer 1905078Vakta málsnúmer
Lögð fram gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga fyrir árið 2020. Gjaldskráin er óbreytt frá fyrra ári.
Atvinnu-, menningar og kynningarnefnd samþykkir að gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga verði óbreytt frá fyrra ári.

4.Breyting á opnunartíma Byggðasafns Skagfirðinga - Glaumbær
Málsnúmer 1905079Vakta málsnúmer
Tekið fyrir erindi frá safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, Berglindi Þorsteinsdóttur, um breyttan opnunar Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ. Dagsett 28.05.2019.
Atvinnu-, menningar og kynningarnefnd ákveður að fresta ákvörðun um opnunartíma Byggðasafns Skagfirðinga og mun jafnframt fara í vettvangsferð og ræða starfsemi safnsins.

5.Fyrirspurn um stöðu framkvæmda í varðveislurými Byggðasafnsins
Málsnúmer 1909235Vakta málsnúmer
Tekin fyrir fyrirspurn Ragnheiðar Halldórsdóttur nefndarmanni um stöðu framkvæmda í varðveislurými Byggðasafns Skagfirðinga dagsett 23.09.19
Farið var yfir stöðu framkvæmda á varðveislurými Byggðasafnsins er hún eftirfarandi:
- Eldvarnahurðar munu berast í þessari viku og verður þá farið í uppsetningu á þeim.
- Lagnavinna vegna brunakerfis er að hefjast en búið er að útvega allt efni og brunastöðin sjálf er einnig klár.
- Búið er að malbika bílastæði fyrir framan varðveislurýmin.
Ragnheiður Halldórsdóttir (Byggðalista) óskar bókað:
Fulltrúi ByggðaLista leggur til að nefndin fari í vettvangsferð að Borgarflöt 17-19 og taki út þær framkvæmdir sem þar hafa átt sér stað síðustu mánuði. Með því geta nefndarmenn og starfsmenn nefndarinnar séð svart á hvítu hver staða húsnæðisins er í raun og veru. Á sama tíma er hægt að fá nánari upplýsingar um hvað veldur þeirri miklu töf sem hefur orðið á framkvæmdum í húsnæðinu og hversu lengi verkið mun tefjast í viðbót. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 (málaflokk 05 - menningarmál) var gert ráð fyrir 5,4 mkr. í húsleigu fyrir 9 mánuði sem nemur 600.000 kr. á mánuði. Nú er kominn september og geymslurýmið enn ekki tilbúið og mun því þurfa að framlengja leigusamninginn. En það hefur verið ljóst síðan í desember 2018 að ráðast þyrfti í frekari öryggisráðstafanir í geymslurýminu vegna starfsemi bifreiðaþjónustu í sama húsnæði. Þær úrbætur sem þörf var á í húsnæðinu voru nokkrar en þó ekki það miklar að verkið ætti að taka eins langan tíma og raun ber vitni. Vettvangsferð mun leiða af sér að hægt verði að leggja raunverulegt mat á stöðu framkvæmda og hvenær verði hægt að hefja flutning munanna.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd er samþykk því að fara í vettvangsferð á helstu starfsstöðvar Byggðasafnsins og skoða starfsemi safnsins heildstætt.

6.Nýtt fiskveiðiár 2019-2020, úthlutað aflamark
Málsnúmer 1909024Vakta málsnúmer
Tekin fyrir til kynningar úthlutuðu aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2019/2020 sem barst nefndinni þann 02.09.2019.
7.Ferðamenn í Skagafirðir 2010-2018; tilboð
Málsnúmer 1902134Vakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar skýrsla um ferðamenn í Skagafirði 2010-2018.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmönnum nefndarinnar að finna leiðir til að afla ítarlegri upplýsinga um komur ferðamanna í Skagafirði en þær sem koma fram í þessari skýrslu.

Fundi slitið - kl. 14:42.
Atvinnu-, menningar og kynningarnefnd þakkar erindið og samþykkir að styrkja kórinn um 200.000 kr.
Tekið af lið 05890.