Atvinnu- og ferðamálanefnd
Atvinnu- og ferðamálanefnd
Sameinaðs sveitarfélags í Skagafirði
Fundur 11 - 30.10.1998
Föstudaginn 30. okt. 1998 kom atvinnu- og ferðamálanefnd saman til fundar á skrifstofu Skagafjarðar kl. 8,30.
Mættir voru: Stefán Guðmundsson, Ásdís Guðmundsdóttir, Pétur Valdimarsson, Sveinn Árnason og Einar Gíslason.
Dagskrá:
1. Atvinnu- og ferðamál.
Afgreiðslur:
1. Á fundinn kom Deborah J. Robinsson ferðamálafulltrúi. Hún kynnti könnun Rögnvaldar Guðmundssonar um komu erlendra og innlendra gesta í Skagafirði sumarið 1996. Miklar umræður voru um ferðamál í Skagafirði. Deborah vék þá af fundi.
Rætt um stofnun atvinnuþróunarfélag Skagafjarðar. Formanni falið að leita samninga við KPMG Endurskoðun hf. og Jón Sigfús Sigurjónsson hdl. um gerð samninga og samþ. fyrir félagið.
Fleira ekki gert og fundi slitið.
Einar Gíslason
Ásdís Guðmundsdóttir
Pétur Valdimarsson
Stefán Guðmundsson
Sveinn Árnason