Atvinnu- og ferðamálanefnd
Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar
Fundur 25 – 20.05.1999
Fimmtudaginn 20. maí kom atvinnu- og ferðamálanefnd saman til fundar í Stjórnsýsluhúsinu á Sauðárkróki.
Mættir voru: Stefán Guðmundsson, Brynjar Pálsson, Guðmundur Árnason, Pétur Valdimarsson, Einar Gíslason, Orri Hlöðversson og Bjarni Freyr Bjarnason.
DAGSKRÁ:
- Ferðamál.
- Önnur mál.
AFGREIÐSLUR:
1. Bjarni Freyr Bjarnason forstöðumaður upplýsingamiðstöðvarinnar í Varmahlíð mætti á fundinn. Rætt um starfsemina í sumar. Ákveðið að funda með ferðaþjónustuaðilum í Skagafirði 27. maí nk. Magnús Oddsson ferðamálastjóri verði með framsögu á fundinum ásamt Bjarna Frey. Á fundinum verði m.a. fjallað um uppbyggingu og möguleika í ferðaþjónustu í Skagafirði. Deborah Robinsson og Rögnvaldur Guðmundsson ferðamálafræðingur komu á fundinn. Rögnvaldur kynnti Evrópuverkefnið Guide 2000 og fór yfir rannsóknir í ferðaþjónustu á landinu og í Skagafirði. Einnig kynnti hann stefnumótun í ferðaþjónustu.
2. Önnur mál.
Borist hefur bréf til nefndarinnar frá sveitarstjóra. Í bréfinu er óskað umsagnar atvinnu- og ferðamálanefndar um að taka þátt í útgáfu bókar sem fjalla á um Ísland um aldamótin. Svona bók var gefin úr 1990. Atvinnu- og ferðamálanefnd leggur til að Sveitarfélagið Skagafjörður taki þátt í útgáfunni. Kostnaður 220.000 kr. að viðbættum kostnaði vegna samningu texta og myndir.
Formanni falið að skrifa bréf til veitustjórnar vegna þvottaplans við tjaldstæði á Steinsstöðum.
Fleira ekki gert og fundi slitið.
Brynjar Pálsson
Stefán Guðmundsson
Guðmundur Árnason
Pétur Valdimarsson
Einar Gíslason