Atvinnu- og ferðamálanefnd
Dagskrá
1.Erindi varðandi vöruþróun í ferðaþjónustu
Málsnúmer 0801024Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Félagi ferðaþjónstunnar þar sem óskað er eftir samstarfi um verkefni í vöruþróun og markaðssetningu í ferðaþjónustu í Skagafirði.
Nefndin samþykkir að taka þátt í verkefninu með fjárveitingu allt að kr. 500.000.
Rætt almennt um ferðamál í Skagafirði, upplýsingamiðlun til ferðamanna og fleira.
Svanhildur Pálsdóttir, Magnea Guðmundsdóttir og Steinn Sigurðsson frá Félagi ferðaþjónustunnar sátu fundinn undir þessum lið.
Fundi slitið - kl. 14:00.