Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

113. fundur 18. september 2024 kl. 12:00 - 13:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Einar Eðvald Einarsson varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Formaður lagði til í upphafi fundar að mál #2408121 - Tilboð mannauðsmælingar væri tekið fyrir með afbrigðum. Samþykkt samhljóða.

1.Rekstrarsamningur við skíðadeild 2024

Málsnúmer 2406128Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að nýjum rekstrarsamningi á milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og Skíðadeildar Tindastóls vegna reksturs skíðasvæðisins í Tindastóli. Samningurinn gildir til loka árs 2028.
Byggðarráð samþykkir samningsdrögin samhljóða.

Byggðarráð felur sveitarstjóra jafnframt að undirbúa gerð viðauka vegna samningsins.

2.Beiðni um kostnaðarþátttöku vegna endurnýjunar kirkjugarðsgirðingar

Málsnúmer 2310242Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir kostnað við framkvæmdir vegna endurnýjunar girðingar og sáluhliða við kirkjugarð Sauðárkróks. Í fjárhagsáætlun ársins 2024 var gert ráð fyrir að helmingur kostnaðarhlutdeildar sveitarfélagsins gjaldfærðist á því ári og eftirstöðvar færu á fjárhagsáætlun ársins 2025.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

3.Lóðarleigusamningar á Nöfum

Málsnúmer 2308167Vakta málsnúmer

Lóðarleigusamningar á Nöfum renna flestir út í lok árs 2024.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna að drög nýrra samninga og leggja fyrir byggðarráð.

4.Tilboð mannauðsmælingar

Málsnúmer 2408121Vakta málsnúmer

Mál áður á dagskrá 112. fundar byggðarráðs þann 11. september sl.

Fyrir liggur minnisblað sem mannauðsstjóri Skagafjarðar tók saman og kynnti á 112. fundi byggðarráðs með tilboðum í mannauðsmælingar fyrir starfstöðvar sveitarfélagins. Það er mat mannauðsstjóra að tilboð HR monitor sé hagstæðast í umræddar mælingar og mælist til að því tilboði verði tekið.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga að tilboði HR monitor um mannauðsmælingar fyrir starfstöðvar sveitarfélagsins og felur mannauðsstjóra að ganga frá samningum við fyrirtækið.

5.Boð á haustþing SSNV

Málsnúmer 2409109Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar boð á 8. haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem haldið verður í félagsheimilinu á Blönduósi þann 15. október nk.

6.Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 2024

Málsnúmer 2409100Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dagsettur 10. september 2024 með aðalfundarboði Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður þann 9. október nk. klukkan 13:00 á Reykjavík Hilton Nordica. Í kjölfar aðalfundarins verður svo Orkufundur samtakanna haldinn.

Fundi slitið - kl. 13:00.