Byggðarráð Svf. Skagafjarðar
Byggðarráð Skagafjarðar
Fundur 117 – 15.11. 2000Ár 2000, miðvikudaginn 15. nóvember, kom byggðarráð saman til fundar á skrifstofu Skagafjarðar kl. 1000.
Mætt voru: Herdís Á. Sæmundardóttir, Elinborg Hilmarsdóttir, Gísli Gunnarsson, Páll Kolbeinsson og Ingibjörg Hafstað.
DAGSKRÁ:
1. Viðræður við fulltrúa hestamannafélaga í Skagafirði
2. Áætlun um útsvarstekjur 2001
3. Bréf frá félagsmálanefnd Alþingis
4. Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjöld í Sveitarfélaginu Skagafirði
5. Umsóknir um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
6. Orlofsmál
7. Reykjasel
8. Félag eldri borgara
AFGREIÐSLUR:
1. Fulltrúar hestamannafélaganna í Skagafirði komu á fund byggðarráðs til viðræðna um Landsmót hestamanna á Vindheimamelum árið 2002 og aðkomu sveitarfélagsins að því.
Byggðarráð samþykkir að vinna frekar að málinu samkvæmt þeim drögum sem fyrir liggja um framkvæmdir á landsmótssvæðinu.
2. Lögð fram til kynningar áætlun um útsvarstekjur 2001.
3. Lagt fram bréf frá Félagsmálanefnd Alþingis, dagsett 10. nóvember 2000, varðandi umsögn um þingmál 199; Tekjustofnar sveitarfélaga og þingmál 200; Vatnsveitur sveitarfélaga.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra og formanni byggðarráðs að semja bókun um ofangreind mál og leggja fyrir byggðarráðsmenn fyrir 22. nóvember nk.
4. Lögð fram gjaldskrá fyrir gatnagerðargjöld í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að endurskoða orðalag á einstökum liðum í gjaldskránni.
5. Lagðar fram umsóknir um námsvist utan lögheimilissveitarfélags.
Byggðarráð samþykkir að verða við erindinu.
6. Orlofsmál starfsmanna.
Byggðarráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins.
7. Byggðarráð samþykkir að selja hlut sinn í jörðinni Reykjaseli og að meðeigendum verði tilkynnt um þá ákvörðun.
8. Byggðarráð samþykkir að veita félagi eldri borgara í Skagafirði kr. 50.000 í styrk til nk. áramóta.
Fleira ekki gert. Fundargerð upplesin og samþykkt og fundi slitið kl. 1225