383. fundur
13. mars 2007
Byggðaráð SkagafjarðarFundur 383 - 13. mars 2007 Ár 2007, þriðjudaginn 13. mars kl. 09:00, kom Byggðarráð Skagafjarðar saman til fundar í Ráðhúsinu á Sauðárkróki. Fundinn sátu: Bjarni Egilsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson og Bjarni Jónsson, áheyrnarfulltrúi.Auk þess sat fundinn Guðmundur Guðlaugsson, sveitarstjóri. Fundarritari var Engilráð Margrét Sigurðardóttir Erindi til afgreiðslu
|
|
1.
| Ársfundur og stofnfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf
|
| Mál nr. SV070164
|
Borist hefur fundarboð á ársfund Lánasjóðs sveitarfélaga fyrir árið 2006 þann 23. mars n.k. í tengslum við XXI. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ennfremur er boðað til stofnfundar Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. sem haldinn verður í beinu framhaldi af ársfundinum. Er þess óskað að sveitarfélagið tilnefni formlega einn fulltrúa sem fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á stofnfundinum og undirriti stofnsamning félagsins fyrir hönd þess. Allir þingfulltrúar á landsþingi hafa seturétt á þessum fundum. Meðfylgjandi fundarboðum er, ásamt dagskrám, drög að stofnsamningi Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. þar sem lagt er til að nafnverð hlutafjár í félaginu verði samtals 5.000.000.000 kr.Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra umboð til að fara með atkvæðisrétt Sveitarfélagsins Skagafjarðar á stofnfundinum og undirrita stofnsamning Lánasjóðs sveitarfélaga ohf f.h.sveitarfélagsins.
|
|
2.
| Félagsh. Melsgil - umsögn v.gistingar
|
| Mál nr. SV070162
|
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki óskar eftir umsögn um umsókn Ingibjargar Sigurðardóttur f.h. Félagsheimilisins Melsgils um endurnýjun leyfis til reksturs félagsheimilis og svefnpokagistingar í því.Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.
|
|
3.
| Eyrarvegur 14, Kiwanis - umsókn um rekstrarstyrk
|
| Mál nr. SV070161
|
Kiwanisklúbburinn Drangey sækir um styrk til greiðslu fasteignaskatts.Byggðarráð samþykkir að veita styrk, þ.e. 70#PR af fasteignaskatti v.ársins 2007, skv. reglum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.
|
|
4.
| Þjónustusamn. Sveitarfél. Skagafj. og Markaðsskrifstofu ferðamála Nl.
|
| Mál nr. SV070163
|
Lagður fram þjónustusamningur milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi, sem tekur yfir tímabilið frá 1. janúar 2007 til 31. desember 2009. Samningurinn er uppsegjanlegur árlega.Byggðarráð samþykkir framlagðan samning.
|
|
5.
| Víkingaland - bygginga- og kostnaðaráætlun.
|
| Mál nr. SV070129
|
Erindi frá Skúla Þór Bragasyni þar sem hann sækir um u.þ.b. 10 ha. land undir ferðaþjónustusvæði fyrir ofan Sauðárkrók, í Skógarhlíð. Áður á dagskrá byggðarráðs 27. febrúar sl. Einnig lagðar fram umsagnir atvinnu- og ferðamálanefndar, umhverfis- og samgöngunefndar, skipulags- og bygginganefndar ásamt bygginga- og kostnaðaráætlun verkefnisins.Byggðarráð samþykkir að óska eftir því við tækni- og umhverfissvið að yfirfara kostnaðaráætlun umsækjanda og meta jafnframt kostnað sem fyrirséð yrði að félli á sveitarfélagið og fyrirtæki þess. Byggðarráð áréttar það sem fram kemur í bókun Skipulags- og byggingarnefndar að umrætt svæði er ekki í Aðalskipulagi skilgreint sem byggingarsvæði heldur almennt útivistar- og skógræktarsvæði.
|
6.
| Erindi vegna Félagsheimilisins Skagasels
|
| Mál nr. SV070165
|
Borist hefur erindi frá Menningar- og kynningarnefnd, eftir fund með húsnefnd félagsheimilisins Skagasels. Þar kom fram vilji Kvenfélags Skefilsstaðahrepps til að sjá um málningu utanhúss (efni og vinnu) á félagsheimilinu Skagaseli að því tilskildu að Eignasjóður sæi um viðgerðir á múrhúð.Byggðarráð tekur jákvætt í að málið verði skoðað og óskar eftir kostnaðarmati tæknideildar á nefndum múrviðgerðum.- Afgreiðslu frestað. 7.
| Trúnaðarmál
|
| Mál nr. SV070166
|
- Sjá Trúnaðarbók - Lagt fram til kynningar
|
|
8.
| Viðbygging við verknámshús FNV - drög að samningi
|
| Mál nr. SV070134
|
Lögð fram til kynningar skjöl í málinu. Fleira ekki fyrir tekið, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 10,10. Engilráð Margrét Sigurðardóttir, ritari fundargerðar Bjarni Egilsson
|
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir
| Gunnar Bragi Sveinsson
|
Bjarni Jónsson