Byggðarráð Svf. Skagafjarðar
Byggðarráð Skagafjarðar
Fundur 407 - 23. október 2007
Ár 2007, þriðjudaginn 23. október kl. 10:00, kom Byggðarráð Skagafjarðar saman til fundar í Ráðhúsinu á Sauðárkróki.
Fundinn sátu:
Sigríður Björnsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Bjarni Jónsson áheyrnarfulltrúi.
Auk þess sat fundinn Guðmundur Guðlaugsson sveitarstjóri.
Fundarritari var Margeir Friðriksson
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Lögð fram breytingartillaga á endurskoðaðri fjárhagsáætlun ársins 2007 m.a. vegna nýrra upplýsinga Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 12. október 2007 varðandi reglur um ráðstöfun 1.400 millj. kr. aukaframlags. Í hlut Sveitarfélagsins Skagafjarðar er áætlað að komi tæpar 102,5 milljónir króna. Einnig er kynnt áætlun um tekjujöfnunarframlag 2007 að upphæð 39,3 mkr.
Til viðbótar við fyrirliggjandi tillögu er áætluð 1 mkr. gjöf til uppbyggingar og styrkingar barna- og unglingastarfs Ungmennafélagsins Tindastóls vegna 100 ára afmælis félagsins í ár. Hækkar málaflokkur 21 um samsvarandi upphæð.
Niðurstaða endurskoðaðrar áætlunar fyrir A og B hluta er rekstrarhagnaður að upphæð 1.000 þús.kr. Eignir samtals 4.101.723 þús.kr. Skammtímaskuldir 543.152 þús.kr., langtímaskuldir 2.116.866 þús.kr., skuldbindingar 653.807 þús.kr. og eigið fé 787.898 þús.kr.
Byggðarráð samþykkir að vísa endurskoðaðri fjárhagsáætlun til sveitarstjórnar með áorðnum breytingum.
Lagt fram bréf frá sýslumanninum á Sauðárkróki, dagsett 18. október 2007, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Benedikts Benediktssonar, Stóra-Vatnsskarði, um endurnýjun á rekstrarleyfi til að reka ferðaþjónustu að Stóra-Vatnsskarði.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
Lagt fram erindi dagsett 17. október 2007 frá Brynhildi Bjarkadóttur og Hreini Þorgilssyni, þar sem þau óska eftir að fá fasteignina Austurgötu 7, Hfs. keypta.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að skoða málið frekar.
Lagt fram til kynningar bréf frá menntamálaráðuneytinu, dagsett 16. október 2007 varðandi upplýsingabækling um stuðning við dönskukennslu á Íslandi næstu fjögur árin.
Lögð fram kynning á verkefninu #GLSkólar á grænni grein#GL, sem er alþjóðlegt umhverfisverkefni fyrir skóla. Umboðsaðili á Íslandi er Landvernd.
Kynnt skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2006. Skýrslan liggur frammi á fundinum.
Fleira ekki fyrir tekið, fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 10:54
Margeir Friðriksson, ritari fundargerðar
Fundur 407 - 23. október 2007
Ár 2007, þriðjudaginn 23. október kl. 10:00, kom Byggðarráð Skagafjarðar saman til fundar í Ráðhúsinu á Sauðárkróki.
Fundinn sátu:
Sigríður Björnsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Bjarni Jónsson áheyrnarfulltrúi.
Auk þess sat fundinn Guðmundur Guðlaugsson sveitarstjóri.
Fundarritari var Margeir Friðriksson
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Erindi til afgreiðslu | |||
1. | Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2007 | Mál nr. SV070512 |
Til viðbótar við fyrirliggjandi tillögu er áætluð 1 mkr. gjöf til uppbyggingar og styrkingar barna- og unglingastarfs Ungmennafélagsins Tindastóls vegna 100 ára afmælis félagsins í ár. Hækkar málaflokkur 21 um samsvarandi upphæð.
Niðurstaða endurskoðaðrar áætlunar fyrir A og B hluta er rekstrarhagnaður að upphæð 1.000 þús.kr. Eignir samtals 4.101.723 þús.kr. Skammtímaskuldir 543.152 þús.kr., langtímaskuldir 2.116.866 þús.kr., skuldbindingar 653.807 þús.kr. og eigið fé 787.898 þús.kr.
Byggðarráð samþykkir að vísa endurskoðaðri fjárhagsáætlun til sveitarstjórnar með áorðnum breytingum.
2. | Stóra-Vatnsskarð ferðaþjónusta - umsagnarbeiðni | Mál nr. SV070514 |
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
3. | Málefni Eignasjóðs - Austurgata 7, Hofsósi Fyrirspurn um kaup. | Mál nr. SV070295 |
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að skoða málið frekar.
Lagt fram til kynningar | |||
4. | Bæklingur um stuðning við dönskukennslu | Mál nr. SV070515 |
5. | Skólar á grænni grein | Mál nr. SV070517 |
6. | Skýrsla umboðsmanns Alþingis f. 2006 | Mál nr. SV070518 |
Fleira ekki fyrir tekið, fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 10:54
Margeir Friðriksson, ritari fundargerðar