Á fund byggðarráðs komu Ingvi Jökull Logason forsvarsmaður Sýndarveruleika ehf. og Arnór Halldórsson hrl. og fóru yfir samninga og bókanir vegna samstarfs um sýndarveruleikasýningu í Aðalgötu 21 á Sauðárkróki. Véku þeir af fundi kl. 14:00. Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að vísa samstarfssamningi um uppbyggingu sýndarveruleikasýningar ásamt fylgigögnum til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bjarni Jónsson óskar bókað: Þrátt fyrir breytingar á nokkrum atriðum í samningsdrögum, eiga þeir fyrirvarar og gagnrýni sem VG og óháð hafa áður sett fram vegna málsins enn við í meginatriðum. Því er afstaðan óbreytt. Að öðru leyti vísast til umfjöllunar við fyrirtöku á fyrirhuguðum sveitarstjórnarfundi. VG og óháð eru andvíg samningunum í núverandi mynd. Bjarni Jónsson, VG og óháðum.
Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að vísa samstarfssamningi um uppbyggingu sýndarveruleikasýningar ásamt fylgigögnum til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Bjarni Jónsson óskar bókað:
Þrátt fyrir breytingar á nokkrum atriðum í samningsdrögum, eiga þeir fyrirvarar og gagnrýni sem VG og óháð hafa áður sett fram vegna málsins enn við í meginatriðum. Því er afstaðan óbreytt. Að öðru leyti vísast til umfjöllunar við fyrirtöku á fyrirhuguðum sveitarstjórnarfundi. VG og óháð eru andvíg samningunum í núverandi mynd.
Bjarni Jónsson, VG og óháðum.