Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar
Félags- og tómstundanefnd Skagafjarðar
Fundur 105 – 14.05.2007
Fundur 105 – 14.05.2007
Ár 2007, mánudaginn 14. maí, var haldinn fundur í Félags- og tómstundanefnd Skagafjarðar og hófst hann kl. 16:00 í Ráðhúsinu.
Mættir voru: H. Vanda Sigurgeirsdóttir, Íris Baldvinsdóttir og Sigríður Björnsdóttir.
Af hálfu starfsmanna: María B. Ingvadóttir, Rúnar Vífilsson og Gunnar Sandholt.
María Björk og Íris rituðu fundargerð.
dagskrá
- Trúnaðarmál
- Hljóðkerfi á íþróttavöll
- Nýtt starf forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar á Sauðárkróki: starfslýsing og auglýsing
- Sumar - t.í.m.
- Ákvörðun um “hvatarpeninga “.
- Stjórnun vinnuskóla og félagsmiðstöðvar í sumar
- Önnur mál
Afgreiðslur
- Samþykkt eitt erindi í einu máli.
- Samþykkt að leyfa kaup á hljóðkerfi og búnaði undir frjálsíþróttadýnur á íþróttavöllinn á Sauðárkróki enda rúmast það innan fjárhagsáætlunar fyrir íþróttavöllinn.
- Samþykkt að fela formanni nefndarinnar ásamt frístundastjóra í samvinnu við sveitarstjóra að auglýsa eftir forstöðumanni fyrir Íþróttamiðstöð á Sauðárkróki.
- Dagskrá Sumar-T.Í.M. kynnt. Skráning hefst með kynningu fyrir foreldra 17.maí og lýkur henni 25. maí.
- Samþykkt að Hvatarpeningar nemi kr. 8.000.- fyrir hvert barn sem stundar að lágmarki tvær íþróttagreinar og eina tómstundagrein hjá viðurkenndum námskeiðshaldara í Sumar-T.Í.M. í a.m.k.4 vikur í sumar eða að kostnaður vegna þátttöku barns nemi að lágmarki 30.000.- yfir sumarið.
- Æskulýðs-og frístundastjóri kynnir fyrirkomulag á stjórnun Vinnuskóla og félagsmiðstöðvar í sumar.
- Önnur mál. Erindi frá afmælisnefnd Tindastóls. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Upplesið og rétt bókað. Fundi slitið kl. 17.50