Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar
Landbúnaðarnefnd Skagafjarðar
Fundur 69 – 19.12.2001
Dagskrá:
1. Fundarsetning
2. Reglur um vetrarveiði á ref
3. Drög að útrýmingu fjárkláða
4. Bréf: Elsa Jónsdóttir, skrifstofustjóri
5. Fundargerðir Skarðsárnefndar 20.02-17.10´01
6. Samningur um leiguland á Skarðsá
7. Aðalskipulag Skagafjarðar
8. Önnur mál
AFGREIÐSLUR:
1. Þórarinn setti fund og kynnti dagskrá.
2. Lagðar fram reglur um vetrarveiði á ref. Nokkrar umræður urðu um reglurnar, sem formaður lagði fram, þær síðan samþykktar, vísast til þeirra. Starfsmanni nefndarinnar falið að koma reglunum á framfæri við veiðimenn, sem óska eftir að stunda vetrarveiði.
3. Lögð fram drög að reglugerð um útrýmingu fjárkláða í Vestur- og Austur-Húnavatnssýslu og Skagafjarðarsýslu, undirrituð af Halldóri yfirdýralækni. Þá voru einnig lögð fram drög að dreifibréfi, sem senda á fjáreigendum á svæðinu, samið af yfirdýralækni, gerðar nokkrar athugasemdir.
4. Bréf: Lagt fram bréf, dags. 12. des. #EFK01, undirritað af Elsu Jónsdóttur, skrifstofustjóra sveitarfélagsins, þar er þess óskað að landbúnaðarnefnd fjalli um ósk Ágústu Samúelsdóttur og barna hennar, um að fá að kaupa jörðina Stóru-Reyki í Fljótum. Landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemdir um að Ágústa Samúelsdóttir, ásamt börnum sínum, fái að kaupa jörðina Stóru-Reyki í Fljótum.
5. Kynntar fundargerðir Skarðsárnefndar frá 20.02.-17.10.#EFK01.
6. Lagður fram leigusamningur um leigu á 7,9 ha úr landi Skarðsár, þar sem Jón Baldvinsson í Dæli er leigutaki, sveitarfélagið leigusali. Landbúnaðarnefnd gerir ekki ath.semd við samninginn.
7. Lögð fram til umræðu 1. till. um Aðalskipulag Skagafjarðar 2001-2012. Allnokkrar athugasemdir gerðar sem komið verður á framfæri við byggingafulltrúa sveitarfélagsins.
8. Önnur mál: Lagt fram erindi frá Jóhanni Má í Keflavík, þar sem hann óskar leyfis landbúnaðarnefndar um að fá að halda fé í fjárhúsum á Hellulandi. Landbúnaðarnefnd heimilar notkun húsanna fyrir sitt leyti.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 16,30.
Sigurður Haraldsson ritar fundargerð.