Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar
Landbúnaðarnefnd Skagafjarðar
Fundur 14 – 14.08.2003
Ár 2003, fimmtudaginn 14. ágúst, kl. 1100, kom Landbúnaðarnefnd saman til fundar í kaffistofu Áhaldahússins á Sauðárkróki.
Mættir voru: Árni Egilsson, Úlfar Sveinsson, Örn Þórarinsson og Sigurður Haraldsson, starfsmaður.
Dagskrá:
1. Fundarsetning
2. Bréf dags. 29.07.03
3. Lausaganga búfjár
4. Búfjárhald í Sveitarfél. Skagafjörður
5. Önnur mál
AFGREIÐSLUR:
1. Árni Egilsson setti fund og kynnti dagskrá.
2. Lagt fram bréf, dags. 29.07.03, undirritað af Halldóri Björnssyni, Stóru-Seylu, þar sem óskað er eftir að Stóra-Seyla verði leyst frá óðalsákvæðum.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að mæla með að jörðin Stóra-Seyla verði leyst frá óðalsákvæðum.
3. Rætt var um vandamál varðandi lausagöngu búfjár í sveitarfélaginu Skagafirði. Samþ. var að óska eftir fundi með fulltrúum Vegagerðarinnar um málið.
4. Búfjárhald í Sveitarfél. Skagafjörður.
Rætt var um samþ. um búfjárhald í sveitarfélaginu.
Landbúnaðarnefnd samþ. að kanna hvort ástæða sé til að setja sérstakar reglur um búfjárhald.
5. Rædd ýmis mál.
Fleira ekki gert, fundi slitið.
Sigurður Haraldsson