Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar
Landbúnaðarnefnd Skagafjarðar
Fundur 28 – 17.12.2004
Ár 2004, föstudaginn 17. desember kl. 1000, kom Landbúnaðarnefnd saman til fundar að Borgarteigi 15, (Áhaldahúsi), Sauðárkróki.
Mættir voru: Árni Egilsson, Úlfar Sveinsson, Einar Einarsson og Sigurður Haraldsson, starfsmaður.
Dagskrá
1. Fjárhagsáætlun 2005
2. Réttarbygging í Deildardal 2005
3. Bréf.
Árni setti fund og kynnti dagskrá.
afgreiðslur
1. Fjárhagsáætlun 2005 rædd og samþykkt að vísa henni til byggðarráðs og seinni umræðu í sveitarstjórn.
Niðurstöðutölur v. landbúnaðarmála:
Gjöld | 6.981.000 |
Tekjur | 350.000 |
Kostnaður við refa- og minkaeyðingu 2005 er áætlaður kr. 4.850.000 netto.
2. Réttarbygging í Deildardal.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að byggð verði ný skilarétt í Deildardal á árinu 2005. Landbúnaðarnefnd óskar eftir framlagi frá sveitarsjóði allt að kr. 3,5 millj. á árinu 2005.
3. Bréf:
a) Lagt fram til kynningar bréf, dags. 30.11.04, frá Sigurði Sigurðarsyni, efni er varðaði miltisbrand.
Fleira ekki gert, fundi slitið.
Árni Egilsson Sigurður Haraldsson, ritari
Einar E. Einarsson
Úlfar Sveinsson