Sauðárkrókshöfn - deiliskipulag
Málsnúmer 0804086
Vakta málsnúmerSkipulags- og byggingarnefnd - 142. fundur - 19.03.2008
Skipulags- og byggingarnefnd - 143. fundur - 31.03.2008
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 225. fundur - 01.04.2008
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 226. fundur - 16.04.2008
Afgreiðsla 143. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 226. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
Skipulags- og byggingarnefnd - 190. fundur - 16.11.2009
Einar Einarsson og Þórdís Friðbjörnsdóttir settu fund og buðu fundarmenn velkomna. Fundurinn er sameiginlegur fundur Umhverfis-og samgöngunefndar og Skipulags-og byggingarnefndar varðandi deiliskipulag Sauðárkrókshafnar. Árni Ragnarsson fór yfir skipulagstillöguna eins og hún liggur fyrir. Miklar umræður urðu um tillöguna og skoðar Árni hana áfram í ljósi umræðna á fundinum.
Skipulags- og byggingarnefnd - 197. fundur - 22.01.2010
Einar Einarsson og Þórdís Friðbjörnsdóttir settu fund og buðu fundarmenn velkomna. Sérstaklega Árna Ragnarsson ráðgjafa. Fundurinn er sameiginlegur fundur Umhverfis-og samgöngunefndar og Skipulags-og byggingarnefndar varðandi deiliskipulag Sauðárkrókshafnar. Árni Ragnarsson fór yfir skipulagstillöguna og drög að greinargerð eins og hún liggur fyrir. Miklar umræður urðu um tillöguna og skoðar Árni hana áfram í ljósi umræðna á fundinum og honum falið að leggja fram á næsta fundi hugmyndir að þeim útfærslum sem ræddar. Ákveðið að óska eftir fundi með forsvarsmönnum fyrirtækækjanna á svæðinu áður en lokatillaga verður afgreidd.
Skipulags- og byggingarnefnd - 198. fundur - 27.01.2010
Skipulags- og byggingarnefnd - 199. fundur - 05.02.2010
Til umræðu var aðkoma að lóðinni Eyrarvegur 21 og hugsanleg lóðarstækkun. Til fundar við nefndina komu Ólafur Sigmarsson frá Kaupfélagi Skagfirðinga og Magnús Svavarsson frá Vörumiðlun. Árni Ragnarsson skipulagsráðgjafi skýrði kynnti hugmyndir nefndarinnar og Magnús og Ólafur reifuðu skoðanir lóðarhafa. Þórdís Friðbjörnsdóttir formaður umhverfis- og samgöngunefndar sat fund nefndarinnar undir þessum lið.